↳Um okkur
Um okkur
Fjölskyldurekið verkstæði í Garðabæ. Við gerum við bíla eins og við myndum gera við okkar eigin.

Verkstæðið
2021 —
2021 —
Fyrirtækið var stofnað af fjölskyldu sem hefur starfað við bifvélavirkjun í tugi ára. Þó reksturinn sé ungur, þá er teymið það ekki — hver einasti bifvélavirki hjá okkur hefur árum saman unnið á verkstæðum á höfuðborgarsvæðinu.
Við tökum að okkur öll farartæki, stórar viðgerðir sem smáar. Stöðugt er bætt við sérhæfðu starfsfólki og tækjabúnaði til að mæta þörfum viðskiptavina.
Markmið okkar er einfalt: heiðarleg þjónusta, rétt unnin í fyrsta skipti, á föstu verði sem viðskiptavinurinn skilur.
Gildin okkar
01
Heiðarleiki
Við segjum þér hvað þarf að gera og hvað má bíða. Engin óþörf vinna.
02
Fast verð
Tilboð fyrirfram. Ef eitthvað breytist heyrirðu í okkur strax.
03
Reynsla
Við þekkjum vandamálin sem íslenskar aðstæður skapa.
Teymið

Dómald Leó Burknason
Yfirbifvélavirki · Framkvæmdarstjóri

Daníel Þ. Dómaldsson
Bifvélavirki · Rekstrarstjóri

Marvin Wallace
Bifvélavirki

Eyþór Burkni Dómaldsson
Bifvélavirki · Nemi

Sveinn Óli Dómaldsson
Bifvélavirki · Nemi